Climate Fresk vinnustofa í Amtsbókasafninu 21. nóvember
Amtsbókasafnið á Akureyri, Brekkugata 17, 600 Akureyri Directions
Sat Nov 21 2026 12:00
🌍 Climate Fresk vinnustofa á Akureyri – loftslagsmál, samtal og nýjar hugmyndir!
Samtökin Landsbyggðin lifi bjóða til Climate Fresk vinnustofu á Amtsbókasafninu á Akureyri laugardaginn 21. nóvember kl. 12:00 –15:00.
Vinnustofan er ætluð ungu fólki á aldrinum 16–25 ára og þeim sem starfa með ungu fólki.
🌱 Hvað er Climate Fresk?
Climate Fresk er skemmtileg og fræðandi vinnustofa þar sem þátttakendur vinna saman með myndskreytt kort til að öðlast betri skilning á orsökum og afleiðingum loftslagsbreytinga.
Í vinnustofunni gefst tækifæri til að ræða loftslagsmál, deila hugmyndum og velta fyrir sér hvernig við getum stuðlað að sjálfbærari framtíð.
Engin sérstök þekking á loftslagsmálum er nauðsynleg – aðeins forvitni og áhugi á að taka þátt!
🌍 Vinnustofan er hluti af evrópska Erasmus+ samstarfsverkefninu "SPROUT", sem miðar að því að efla þekkingu og þátttöku ungs fólks í loftslags- og sjálfbærnimálum.
📍 Staður: Amtsbókasafnið á Akureyri
📅 Dagsetning: Laugardagur 21. nóvember 2026
🕛 Tími: Kl. 12:00–15:00
Verið hjartanlega velkomin!