Yfir Mat – skapandi vinnustofa fyrir öll
Sjallinn, Gránufélagsgata 4, 600 Akureyri Directions
Mon 06.07.2026 15:00
Málum saman borðhald í skapandi vinnustofum
Listakonan Unnur Stella Níelsdóttir býður almenningi að taka þátt í skapandi vinnustofu í Start Stúdíó á Gránufélagsgötu 4 á Akureyri. Vinnustofan er opin öllum, þátttaka er gjaldfrjáls og verkefnið er styrkt af Listasumri á Akureyri.
Skráning fer fram með því að senda tölvupóst á: [email protected]
Takið endilega fram hvaða dagsetningu þið viljið koma á, þar sem það verða þrjár vinnustofur í boði, 26. og 27. júní og 6. júlí.
Yfir Mat er þátttökumiðað listaverkefni þar sem þátttakendur koma saman og mála hluti tengda mat, borðhaldi og samveru. Verkefnið skoðar hvernig ólíkir einstaklingar upplifa og túlka sömu hluti á mismunandi hátt og hvernig myndlist getur skapað vettvang fyrir samtal og sameiginlega reynslu.
Í vinnustofunni vinna þátttakendur með viðfangsefni sem tengjast matarmenningu, samveru og daglegu lífi. Úr verður fjölbreytt safn verka sem endurspeglar ólík sjónarhorn, reynslu og raddir samfélagsins.
Öll eru velkomin og engin fyrri reynsla af myndlist er nauðsynleg.
Viðburðurinn er styrktur af Listasumri 2026.
Viðburðadagatal Listasumars má finna á www.listasumar.is
English:
Paint table scenes in creative workshops
Artist Unnur Stella Níelsdóttir invites the public to participate in a creative workshop at Start Stúdíó, located at Gránufélagsgata 4 in Akureyri.
The workshop is open to everyone, free of charge, and supported by Akureyri Art Summer.
To register, please send an email to: [email protected]
Over Food is a participatory art project in which participants come together to paint objects related to food, dining, and shared meals. The project explores how different people experience and interpret the same objects in different ways, and how visual art can create a space for dialogue and shared understanding.
During the workshop, participants will work with themes connected to food culture, togetherness, and everyday life. The resulting artworks will form a diverse collection that reflects the different perspectives, experiences, and voices within the community.
Everyone is welcome, and no prior artistic experience is required.
The full Akureyri Art Summer (Listasumar) event calendar can be found at www.listasumar.is
Performers
-
Listasumar á AkureyriArt summer festival