Dagar myrkurs í Fjarðabyggð
Fjarðabyggð, Austurland Directions
Wed Oct 28 2026 20:00
Tökum á móti skammdeginu með ljósum, listum og lifandi sögum! Dagar myrkurs bjóða upp á fjölbreytta dagskrá með tónleikum, myndlist, þjóðsögum, ritlist og hrekkjavökugleði. Dagar myrkurs eru sameiginleg byggðahátíð Austurlands sem haldin er ár hvert síðustu vikuna í október. Þá fögnum við skammdeginu og samverunni með fjölbreyttum viðburðum víða um landshlutann. Hátíðin dregur fram tækifærin sem felast í myrkrinu og gefur ímyndunaraflinu og sköpunarkraftinum svigrúm. Íbúum og gestum er boðið að hittast, prófa eitthvað nýtt og njóta saman. Í Fjarðabyggð verður fjölbreytt dagskrá dagana 24.–31. október. Þrjár kirkjur verða að lifandi ljósalistaverkum og boðið verður upp á tónleika, þjóðsögur, myndlist, ritlistarvinnustofu og ljóðalestur. Aðgangur að mörgum viðburðum er ókeypis. Listahópurinn Mercury Maze umbreytir þremur kirkjum með ljósum, hljóðum og gagnvirkri vörpunarlist. Þjóðsagan um Völvuna á Hólmahálsi fær þar nýtt líf og gestir geta orðið hluti af verkinu. Ljósalistaverkið verður við Reyðarfjarðarkirkju 27. október, Fáskrúðsfjarðarkirkju 28. október og Norðfjarðarkirkju 29. október, kl. 20:00–22:00 öll kvöldin. Aðgangur er ókeypis. Dagskrá Laugardagur 24. október Kl. 14:00 – Ósjálfráð skrif: Ritlistarvinnustofa með Eyrúnu Úu í Þórsmörk í Neskaupstað. Ókeypis. Kl. 16:00 – Ljóðalestur í Þórsmörk: Axel Bragi Andrésson og Leifur Helgi Konráðsson lesa ljóð yfir kaffibolla. Ókeypis. Sunnudagur 25. október Kl. 15:00 – Undir sömu stjörnu: Söngdagskrá Óperunnar í Eskifjarðarkirkju. Miðaverð 6.900 kr. Miðasala á Tix.is. Mánudagur 26. október Kl. 16:00 – Þjóðsögur með Berglindi Ósk: Bókasafnið í Neskaupstað. Ókeypis. Kl. 20:00 – Misseraskipti: Mynd- og hljóðinnsetning Ellu Medicus og Ótal í samstarfi við Antoníu Berg. Bragginn við Stríðsárasafnið á Reyðarfirði. Ókeypis. Kl. 20:30 – Guðrið Hansdóttir: Tónleikar í BRJÁN í Neskaupstað. Húsið opnar kl. 20:00. Miðaverð 5.990 kr. Þriðjudagur 27. október Kl. 16:00 – Þjóðsögur með Berglindi Ósk: Bókasafnið á Stöðvarfirði. Ókeypis. Kl. 20:00–22:00 – Ljósalistaverk Mercury Maze: Reyðarfjarðarkirkja. Ókeypis. Miðvikudagur 28. október Kl. 17:00–20:00 – Listasýning Jonu Bergdal Jakobsdóttur: Rauða húsið í Beituskúrnum í Neskaupstað. Kl. 20:00–22:00 – Ljósalistaverk Mercury Maze: Fáskrúðsfjarðarkirkja. Ókeypis. Fimmtudagur 29. október Kl. 15:00–18:00 – Listasýning Jonu Bergdal Jakobsdóttur: Rauða húsið í Beituskúrnum í Neskaupstað. Kl. 19:00 – VÖLVUMYRKVI: she who sees past corners: Lokaviðburður sýningar með Helgu Dorotheu Fannon og Myrru Leifsdóttur í Þórsmörk í Neskaupstað. Ókeypis. Kl. 20:00–22:00 – Ljósalistaverk Mercury Maze: Norðfjarðarkirkja. Ókeypis. Föstudagur 30. október Kl. 14:00–17:00 – Listasýning Jonu Bergdal Jakobsdóttur: Rauða húsið í Beituskúrnum í Neskaupstað. Laugardagur 31. október Kl. 23:00 – Hrekkjavökupartí: DJ Tony Tjokko í Valhöll á Eskifirði. Aldurstakmark 18 ár. Þórsmörk er að Þiljuvöllum 11 í Neskaupstað.