Dagar myrkurs í Safnahúsinu á Egilsstöðum

Dagar myrkurs í Safnahúsinu á Egilsstöðum

East Iceland Heritage Museum, Laufskógar 1, 700 Egilsstaðir Directions

Thu Oct 29 2026 16:00

Fimmtudaginn 29. október munu söfnin í Safnahúsinu á Egilsstöðum halda upp á Daga myrkurs með fjölbreyttum hætti.

16:00-18:00: Skornar út hrekkjavökuluktir úr rófum að gömlum sið á Minjasafninu. Athugið að koma þarf með rófur með sér en veitt verður tilsögn og áhöld verða á staðnum. Ath. börn þurfa að vera í fylgd fullorðinna.

16:00-18:00: Myrkrabingó fyrir þá sem þora í sýningarsal Minjasafnsins. Mikilvægt að vera með vasaljós.

16:00-16:30: Lestrarstund fyrir börnin á Bókasafninu.

16:30-18:00: Hrekkjavökuföndur fyrir börnin á Bókasafninu.

Alla vikuna verður boðið upp á Hrekkjavökuratleik á Bókasafninu.

Hlökkum til að sjá ykkur!

Performers