Kynningarfundur um fermingarstarf vetrarins 2026-2027
Lutheran Free Church, Fríkirkjuvegur 5, 101 Reykjavík Directions
Thu 13.08.2026 18:00
Ert þú að fara að ferma barnið þitt?
Við bjóðum foreldrum, forráðamönnum og fermingarbörnum á kynningarfund um fermingarstarf vetrarins í Fríkirkjunni í Reykjavík.
📅 13. ágúst kl. 18:00
📍 Fríkirkjan í Reykjavík
Á fundinum förum við yfir fermingarfræðsluna, dagskrá vetrarins, fermingardagana og annað sem gott er að vita áður en starfið hefst. Einnig gefst tækifæri til að spyrja spurninga og fá svör við því sem ykkur liggur á hjarta.
Fermingarfræðslan er ferðalag þar sem ungmenni fá tækifæri til að staldra við, kynnast sjálfum sér betur, ræða lífið, gildin sín, trúna og framtíðina í góðum félagsskap.
Við leggjum áherslu á hlýlegt og lifandi starf þar sem öll eru velkomin eins og þau eru.
Við hlökkum til að hitta ykkur og kynna það sem fram undan er.
Verið hjartanlega velkomin!