Draumsöguhópur fyrir konur - Akureyri
Akureyri, , Akureyri Directions
Wed Oct 21 2026 16:30
Leiðbeinandi: Valgerður H. Bjarnadóttir
Miðvikudaga á 2ja vikna fresti frá 21. október 2026 til 24. febrúar 2027
Draumar eru stór hluti lífs okkar og á Íslandi er löng hefð fyrir því að segja draumspökum drauma sína og fá ráðningu eða túlkun á þeim. En í seinni tíð hefur það ágerst að fólk taki ekki eftir draumunum og sinni þeim ekki. Um leið hafa sum áttað sig á að sjálf vitum við best hvað draumar okkar eru að segja okkur, en það krefst athygli yfir lengri tíma og oft er mikilvægt að fá speglun frá öðrum.
Að vinna með drauma í traustum hópi er bæði gagnlegt og afar ánægjuleg samvera. Það skapar djúp og einlæg tengsl bæði inn á við og út. Hjá Draumsögu nýtum við ákveðna nálgun í þeirri vinnu og nú opnum við fyrir skráningu í slíkan hóp fyrir konur á Akureyri og nágrenni næstu mánuði.
Einn einkatími fyrir hverja konu sem það kýs er innifalinn í þátttöku.
Námsefni frá Draumsögu, bæði lesefni og myndbönd.
Miðað er við að þátttakendur séu 5 - 7.
Upplýsingar og skráning á vanadis@vanadis.is
Tími: Miðvikudagar kl. 16:30 til 18:30, á tveggja vikna fresti frá 21. október til 24. febrúar, með hléi yfir jól og áramót (alls 9 skipti)
Verð og staðsetning: nánar við skráningu
Valgerður H. Bjarnadóttir hefur haldið námskeið og leitt draumahópa í tæp 30 ár. Hún er félagsráðgjafi, með BA í heildrænum fræðum með áherslu á draumavinnu og MA í femínískri trúarheimspeki og menningarsögu. Hún hefur starfað að málefnum kvenna, fræðslu og ráðgjöf í áratugi og hefur að baki fjölþætta reynslu af félagsmálum, stjórnmálum, heilbrigðismálum, menningar- og menntamálum og jafnréttismálum. Hún hefur nýtt og skoðað sína eigin drauma frá barnsaldri og nýtir draumvitundina markvisst í öllu sínu starfi.