Skúlptúr vikunnar : Vika 41! // Sculpture of the Week: Week 41!
Kling & Bang, Grandagarður 20, 101 Reykjavík Directions
Wed 08.07.2026 17:00
Titill á eventi: Skúlptúr vikunnar : Vika 41! // Sculpture of the Week: Week 41!
English below
Gallerí Kichin var stofnað af þeim Skúla Thayer og Silju Rún Högnadóttur við upphaf skólagöngu þeirra við Listaháskóla Íslands árið 2022. Í upphafi miðaðist galleríið við óræða mublu sem þeim áskotnaðist og héldu á henni tíðar sýningar sem kölluðust Skúlptúr vikunnar. Verkefnið hóf göngu sína með það að markmiði að veita samnemendum tækifæri á að sýna verk eftir sig og efla sköpun. Með tímanum færðust sýningarnar af mublunni inn í rými, voru verk Skúlptúr vikunnar ekki lengur aðeins skúlptúrar og listamenn ekki lengur aðeins samnemendur.
Galleristarnir hafa lagt mikið upp úr því að skrásetja virkni gallerísins á instagram-reikning þess og verið með pop-up viðburði þrívegis í samvinnu við Helgu Thorlacius Finnsdóttir, Ingvar Stein Ingólfsson og Sigurlinn Maríus Sigurðar: Gallerí Kichin opnar á ný, Landabolla & Landa Jello.
Þessi sýning er 41. sýning Gallerí Kichin og til að fagna því mun 41 listamaður sýna verk á sýningunni!
Á þessari stórkostlegu sýningu hafa listamönnum sýningarinnar verið úthlutað sérútbúinn sýningarflöt til að sýna verk sitt á og er flöturinn nákvæm eftirlíking af yfirborði Gallerí Kichin-mublunnar.
Listamenn sýningarinnar eru:
Alexander Freyr Þorvarðarson
Alex Gonçalves
Arnar Ásgeirsson
Arnar Breki Ragnarsson
Árni Jónsson
Auður Mist Eydal Halldórsdóttir
Baldvin Einarsson
Bára Sól Björnsdóttir
Bjartur Elí Ragnarsson
Elín Elísabet Einarsdóttir
Elísabet Brynhildardóttir
Freyja Sercombe
Gunnhildur Halla Ármannsdóttir
Hallbjörg Helga Guðnadóttir
Hallgerður Thorlacius Finnsdóttir
Helga Páley Friðþjófsdóttir
Hildigunnur Birgisdóttir
Hugo Llanes
Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir
Ívar Glói Gunnarsson Breiðfjörð
Ívar Ölmu
Janosch Bela Kratz
Julie Sjöfn Gasiglia
Kolbrún Hulda Geirsdóttir
Kristín Karólína Helgadóttir
Martina Priehodová
Nína Óskarsdóttir
Ólöf Nordal
Páll Haukur
Ragnheiður Íris Ólafsdóttir
Rakel Andrésdóttir
Salka Rósinkranz
Salka Sólberg
Sigurður Guðjónsson
Sirra Sigrún Sigurðardóttir
Sóley Lúsía Jónsdóttir
Sölvi Halldórsson
Steinþór Hannes Gissurarson
Styrmir Örn Guðmundsson
Sunneva Ósk Jónasdóttir
Þórður Hans Baldursson
Sýningin er sjötta og síðasta sýning sýningaraðar Gallerí Kichin í Kling & Bang á Listahátíð Reykjavíkur og hafa alls 54 frábærir listamenn sýnt verk eftir sig.
Verður haldið upp á finisage laugardaginn 18. júlí með skemmtilegum pop-up viðburði Contemporary Nail þar sem boðið verður upp á naglalist og jafnvel annað skemmtilegt:-)
—-------------------------------------
Gallerí Kichin was founded by Skúli Thayer and Silja Rún Högnadóttir when they began their studies at the Iceland University of the Arts in 2022. Initially, the gallery focused on a random piece of furniture that they had acquired. They held frequent exhibitions on the table and called them the Sculpture of the Week. The project began with the goal of giving fellow students the opportunity to show their work and foster creativity. Over time, the exhibitions moved from the table into a space, the works of Sculpture of the Week were no longer just sculptures and the artists no longer just fellow students.
The gallerists have made a great effort to document the gallery's activities on its Instagram account and have held pop-up events three times in collaboration with Helga Thorlacius Finnsdóttir, Ingvar Stein Ingólfsson and Sigurlinn Maríus Sigurðar: Gallerí Kichin Reopens, Landabolla & Landa Jello.
This exhibition is the 41st exhibition of Gallerí Kichin and to celebrate, 41 artists will be exhibiting!
In this magnificent exhibition, the artists in the exhibition have been assigned a specially designed exhibition surface to display their work on, which is an exact replica of the surface of Gallerí Kichins surface.
The artists exhibiting are listed above
The exhibition is the sixth and last exhibition of Gallerí Kichin's exhibition series in Kling & Bang at the Reykjavík Art Festival, and a total of 54 great artists have exhibited their works in this project.
The finisage will be celebrated on Saturday, July 18 with a fun pop-up event by Contemporary Nail, where nail art and even other fun things will be offered:-)