Heklaðu þinn eigin sauna-hat / morgunnámskeið og gusa
Faxatorg - Flóð & fjara, Faxafen 10, 108 Reykjavík Directions
Fri 04.09.2026 09:30
Vertu með í heitustu & huggulegustu yðjunni þessa dagana... sauna og hekl! Þér er boðið að vera með að hekla þinn eigin sauna hatt!
Námskeiðið er tvö skipti:
Fyrra skipti fer fram á vinnustofu Flóðs & fjöru á Faxatorgi, Faxafeni 10. 2. hæð föstudaginn 4. september kl. 9:30-11:30. Þá færðu útprentaða uppskrift að hekluðum sauna hatti og við hefjumst handa við heklið. Byrjendur og upprifjendur geta fengið kennslu.
Áður en við hittumst aftur klára þátttakendur hattinn sinn og þæfir hann í þvottavél samkvæmt leiðbeiningum eftir fyrri hittinginn.
Í seinna skiptið er hisst við Fargufuna við Skarfaklett í Laugarnesi þar sem við förum í gusu undir leiðsögn Heru. Gufugusuna leiðir Hera með þremur 15 mínútna lotur inn gufunni með vaxandi hita, ilmkjarnaolíum, saltskrúbb og góðri tónlist. Á milli lota er kælt í hafinu, grasinu eða loftinu. Boðið er upp á vatn og hressingu. Gusan tekur um 70 mínútur
Dagsetningar & tími: Fös. 4. sept - kl. 9:30-11:30 & lau. 19. sept kl. 13:30-14:45
Verð: 13.900 kr.
Innifalið er hekl kennsla, útprentuð uppskrift & gusan.
Það sem þú þarft að útvega er Drops Snow garn og heklunál. Skráðir þátttakendur fá upplýsingar um garnmagn sem þarf í verkið og afsláttarkóða í Handverkskúnst sem er sérlegur samstarfsaðili á þessu námskeiði.
Námskeið hentar vel fyrir byrjendur & upprifendur.
Handavinnukennari & gusumeistari: Hera Sigurðardóttir.
Sköpun og handavinna eykur vellíðan, að sjá verk verða til í þínum eigin höndum er valdeflandi og ánægjulegt. Að leggja af stað með hugmynd og ásetning en leyfa flæði hugans, hjartans og handanna að skapa verkið og treysta því að útkoman verði sú sem hún á að vera. Þetta er frelsandi gjörningur innan ramma upphafs og endis og útkoman er þín.
Performers
-
Flóð & fjaraA group offering creative workshops
-
Hera Sigurðardóttir
Kennari