EX LIBRIS II – Vetrarsól
Edda, Arngrímsgata 5, 107 Reykjavík Directions
Sat Oct 31 2026 12:00
Tónleikarnir fara fram á bókasafninu í Eddu og tilheyra tónleikaröðinni Ex Libris.
Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir söngkona og Francisco Javier Jáuregui gítarleikari flytja sönglög sem hverfast um ástina, að verða ástfanginn, elska, eiga og missa. Þar má heyra ítölsk, írsk, bandarísk og suðuramerísk sönglög í bland við íslenskar perlur eins og Hjá lygnri móðu og Vísur Vatnsenda-Rósu.
Aðgangseyrir 2.500 kr.
Athugið: Því miður þurfti að aflýsa tónleikum Gunnhildar Einarsdóttur og Þóru Einarsdóttur sem áttu að fara fram þennan sama dag í tónleikaröðinni.
Nánar um flytjendurna:
Mezzósópransöngkonan Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir og spænski gítarleikarinn og tónskáldið Francisco Javier Jáuregui eru þekkt fyrir að skapa mikla nánd við áhorfendur. Með frumlegu efnisvali og tilfinninganæmri túlkun færa þau hlustendur inn í heim hvers lags fyrir sig.
Guðrún og Javier komu fyrst fram saman árið 2002 í Guildhall School of Music and Drama í London, þaðan sem þau luku bæði mastersgráðum í tónlist. Síðan þá hafa þau komið reglulega fram í fjölmörgum tónleikasölum og á tónlistarhátíðum víðs vegar í Evrópu, Bandaríkjunum og Afríku.
Þau flytja oft útsetningar eftir Francisco Javier sjálfan á ýmsum þjóðlögum en hafa einnig frumflutt nýja tónlist eftir íslensk og erlend tónskáld.
www.gudrunolafsdottir.com
www.javierjauregui.com
Um tónleikaröðina Ex Libris:
Verið velkomin að hlýða á kammertónlist í hinum glæsilega bókasal Eddu í vetur.
Í tónleikaröðinni er annars vegar lögð áhersla á samtímatónlist og hins vegar á nýsköpun í flutningi eldri tónlistar, bæði þjóðlegrar tónlistar og barokks.
Allir tónleikarnir fara fram í bókasafni Eddu á laugardögum og hefjast klukkan 12 og standa í tæpa klukkustund.
Dagskrá vetrarins: https://arnastofnun.is/is/ex-libris-tonleikarod