Föstudags "Early Birds" Partý: Giita & Shrem

Föstudags "Early Birds" Partý: Giita & Shrem

Kaffibarinn, Bergstaðastræti 1, 101 Reykjavík Directions

Fri 14.08.2026 21:30

Giita og Shrem eru búsett í Dublin. Þau eru plötusnúðar og góðir vinir sem deila ástríðu fyrir tónlist. Í settunum sínum blanda þau saman house, elektró, diskói og ómótstæðilegum smellum frá áttunda og níunda áratugnum. Þau leiða gesti í tónlistarferðalag milli ólíkra stefna, kynna nýja tónlist og rifja um leið upp allskyns gamalt og gott.

Hvort um sig stendur fyrir vinsælum klúbbakvöldum í Dublin; Giita með After Eight, snemmklúbbakvöldinu sem margir hér heima hafa kynnst, og Shrem með Press Play vinyl kvöldin sín. Þau koma einnig reglulega fram saman og eru þekkt fyrir að skapa rafmagnaða stemningu á dansgólfinu.

Performers