Félagsfundur AÍ: Útboð og samkeppnir

Félagsfundur AÍ: Útboð og samkeppnir

Gróska, Bjargargata 1, 101 Reykjavík Directions

Mon Oct 19 2026 17:00

Arkitektafélag Íslands boðar til félagsfundar um fyrirkomulag opinberra útboða og samkeppna og áhrif þess á starfsskilyrði arkitekta.

Rætt verður um kröfur til þátttakenda, umfang vinnu á fyrstu stigum og aðgengi arkitektastofa af ólíkri stærð að verkefnum. Hvernig má tryggja að ferlin séu gagnsæ og skilvirk, nýti tíma og sérþekkingu vel og skapi svigrúm fyrir fjölbreyttar og vandaðar tillögur?

Sigríður Magnúsdóttir, arkitekt FAÍ, verður með innlegg og leiðir samræðurnar.

Markmið fundarins er að kalla fram reynslu og sjónarmið félagsfólks og móta sameiginlegar áherslur sem AÍ getur notað í áframhaldandi vinnu og samtölum við hið opinbera og einkaaðila.

📅 Mánudaginn 19. október

🕔 Kl. 17:00–18:00

📍 Fenjamýri, Grósku