Ferðalag
Reykjavik, , Reykjavik Directions
Thu 27.08.2026 17:45
Mig langar að bjóða þér að koma í djúpt ferðalag í gegnum öndun þar sem þér gefst tækifæri á að vinna á stressi, streitu og kvíða, einnig gefst okkur kostur á að losa um gömul áföll og hleypa upp á yfirborðið, öðlast meiri skýrleika og verða jarðtengdari.
Við komum til með að opna dyr undirmeðvitundar í gegnum öndunina. Þar gefst okkur tækifæri til að endurforrita okkur og jafnvel losna frá gömlum neikvæðum hugsanamynstrum.
Við opnum athöfnina með því að drekka cacao frá Venezuela.
En það hjálpar okkur að fara enn dýpra í önduninni.
Öndunin sjálf tekur rúma klst en svo leiði ég þig í djúpa slökun með tíbeskum söngskálum.
Reikna má með uþb 2,5 klst í athöfnina.
Koma í þægilegum fötum.
Og með vatnsbrúsa
Mæli ég einnig með því að vera ekki búin að borða þunga máltíð fyrir öndunina og halda kaffi drykkju í lágmarki.
Ef þú ert að glíma við eitthvað af eftirfarandi og ætlar að koma þá endilega sendu á mig línu.
Hjarta og/eða æðavandamál.
Hár blóðþrýstingur
Saga um blóðtappa.
Flogaveiki eða flogaköst.
Hjarta áfall innan síðustu 5 ára
Nýlegar aðgerðir
Ólétta.
Tíminn kostar 5 þúsund kr
MIKILVÆGT
Þið tryggið ykkur pláss með því að ganga frá greiðslu inn á 550825-0310
517-26-220
Skýring millifærslu dagsetning viðburðar
A.T.H ef forföll eru boðuð og minna en 24 klst eru í viðburðinn þá er plássið ekki endurgreitt nema að það náist að selja það öðrum 10 pláss eru í boði
Ef þú þig langar að koma en átt ekki peninga núna sendu mér línu og við finnum lausn á því.
Sendu endilega skilaboð fyrir frekari upplýsingar.
Vonast til að sjá þig 👊
Húsið er opið frá kl 17:30-17:45
Gott væri að að þú meldir þig á viðburðinn og skráir þig hér
https://www.nirvanaondun.com/events/ondunarferdalag-29