Fjölþjóðleg sögusmiðja með Csilla Gévai

Fjölþjóðleg sögusmiðja með Csilla Gévai

Kópavogur library, Hamraborg 6a, 200 Kópavogur Directions

Mon Oct 26 2026 16:00

Barnabókahöfundurinn og grafíski hönnuðurinn Csilla Gévai mun halda skemmtilega sögusmiðju fyrir krakka á Bókasafni Kópavogs, mánudaginn 26. október frá 16.00-17.30.

Þema smiðjunnar er hringrás náttúrunnar og umhverfisvitund.

Smiðjan fer fram á ensku (og/eða ungversku, eftir þörfum), en foreldrar geta útskýrt fyrir börnum sínum á íslensku.

Viðburðurinn er í boði Ungverska Menningarfélagsins og Sendiráðs Ungverjalands í Osló.

,,Finnst þér gaman að teikna, nota límmiða, stimpla og semja sögur?

Viltu semja sögu um eldgos, kraft eldsins og vatnsins.

Þá er þetta rétti staðurinn fyrir þig!

Við munum skapa saman einstaka sögu þar sem eldur og vatn, ímyndunarafl og umhverfisvitund mætast.

-Teiknum og litum

-Semjum sögu um heilsulindir

-Ferðumst inn í heim eldfjallanna

-Stimplum og skreytum með límmiða

-Búum við til okkar eigin sögu saman!

Csilla Gévai er ungverskur barnabókahöfundur og myndlýsir sem hlotið hefur Arany Vackor-verðlaunin.