Fljótandi dívan í Árbæjarlaug

Fljótandi dívan í Árbæjarlaug

Árbæjarlaug, v/Fylkisveg, 110 Reykjavík Directions

Mon Oct 26 2026 19:45

Mánudaginn 26. október næstkomandi mætir Fljótandi dívan í Árbæjarlaug með tónlistar- og ljósaupplifun eftir hollensku listakonuna Victorine Pasman. Þar mætast tónlist, vatn og ljós í verki sem sækir innblástur í 17. aldar klæðnað, hollenskt landslag og sögur af hafmeyjum og skipbrotnum konum.



Í samstarfi við Óperudaga verður vatnið hluti af sviðinu þegar dívan svífur um laugina og leiðir gesti inn í heim þar sem list og ímyndunarafl fléttast saman.

Tvær sýningar verða í boði:



kl. 19:45 - 15 mínútur

kl. 21:00 - 15 mínútur



Ekki missa af þessari mögnuðu upplifun!

Við hlökkum til að sjá ykkur