Foreldrafræðsla í Tónbergi
Tónberg Akranesi, Dalbraut 1, 300 Akranes Directions
Tue Oct 13 2026 17:30
Hvernig eru leikir, öpp og samfélagsmiðlar hönnuð til að fanga athygli okkar?
Hvernig setjum við börnum heilbrigð mörk og hvers vegna skiptir það máli?
Á þessu fræðandi foreldrakvöldi fjalla sérfræðingar frá Netvís, Kristín Ómarsdóttir og Skúli Bragi Geirdal, um skjátíma, samfélagsmiðla og stafrænt umhverfi barna undir yfirskriftinni "Stolin athygli leitar eiganda síns".
Einnig mun Ársæll Már Arnarson, prófessor við Háskóla Íslands, ræða listina að vera "leiðinlegt" foreldri og mikilvægi þess að setja skýr mörk þótt það sé stundum erfitt.
Fræðandi og hagnýtt erindi fyrir foreldra, forráðamenn og alla sem láta velferð barna sig varða.