Forgotten Lores // Frá heimsenda / Gamla Bíó (Forsalan er hafin)

Forgotten Lores // Frá heimsenda / Gamla Bíó (Forsalan er hafin)

Gamla Bíó, Ingólfsstæti 2a, 101 Reykjavík Directions

Fri May 21 2027 19:30

FORGOTTEN LORES FRÁ HEIMSENDA Í 20 ÁR.

Íslenska hiphop sveitin Forgotten Lores fagnar 20 ára afmæli plötunnar Frá heimsenda með sérstökum afmælistónleikum í maí 2027. Platan verður í öndvegi á tónleikunum en jafnframt verður farið um víðan völl í tónlist sveitarinnar og litið yfir ferilinn, allt frá Týnda hlekknum til annarra kafla í sögu Forgotten Lores.

Forgotten Lores skipaði sér snemma sess meðal áberandi sveita í íslensku hiphopi og vakti athygli fyrir texta, orðaleiki og takta.

Fyrsta breiðskífa sveitarinnar, Týndi hlekkurinn, kom út árið 2003 og árið 2006 kom út síðari platan, Frá heimsenda. Platan fékk mjög góðar viðtökur. Fréttablaðið gaf henni fimm stjörnur og sagði Forgotten Lores vera „ókrýnda kónga íslenska rappsins“. Platan fékk einnig fimm stjörnur hjá Morgunblaðinu og var síðar tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna.

Nú þegar tuttugu ár eru liðin frá útgáfu Frá heimsenda kemur sveitin saman til að fagna tímamótunum með sérstökum tónleikum þar sem platan fær að njóta sín á ný.

Þótt Frá heimsenda verði í aðalhlutverki verður kvöldið ekki bundið við eina plötu. Forgotten Lores ætlar að fara yfir sögu sveitarinnar, rifja upp eldri lög og draga fram tónlist frá ólíkum tímabilum ferilsins.

Þetta verður kvöld þar sem við rifjum upp, heyrum aftur og fögnum öllu því sem hefur orðið til á leiðinni. Segir sveitin um tónleikana.

Greinar á Rúv, Visir og Mannlíf.

https://www.ruv.is/frettir/menning-og-daegurmal/2026-11-03-forgotten-lores-troda-upp-i-fyrsta-sinn-i-aratug-491563

https://www.visir.is/g/20262957613d/-okryndir-hip-hop-kongar-is-lands-halda-20-ara-af-maelis-ton-leika

https://mannlif.is/gv5p7/ein-besta-rappsveit-islandssogunnar-snyr-aftur-a-svid/