FöstudagsBlús í Ölhúsinu 20. nóvember
Ölhúsið Hafnarfirði, Flatahraun 5a, 220 Hafnarfjörður Directions
Fri Nov 20 2026 21:00
Þann 20. nóvember verður blásið til heljarinnar blús veislu í tilefni skammdegis og annarrar svartsýni.
Fram koma:
BRÓÐERNI
Blúsdellan liggur í ættinni.
Bræðurnir Helgi og Eyjólfur Guðmundssynir deila ólæknandi blúsdellu og koma fram undir nafninu Bróðerni. Helgi hefur meðal annars leikið með Spilverki þjóðanna og Magga Eiríks, en afurðir bræðralagsins má finna á Spotify undir heitunum Bróðerni og Handplokkað.
VILLI MAGG
Blús að austan. Gítarinn mögulega heimasmíðaður.
Vilhjálmur Magnússon, betur þekktur sem Villi Magg, hefur lengi látið að sér kveða í blúsnum á Höfn, meðal annars með Vibrato Blues Band og The Cuku Contraband. Hann semur eigin lög og smíðar eigin hljóðfæri — enda óþarfi að kenna gítarnum um þegar maður smíðaði hann sjálfur. Tónlistina má finna á Spotify og til Villa má ná á TikTok undir @villi.magg.
Og síðast en ekki sístir,
Blússveitin BARLÓMUR
Frá Mississippi til Macon, með viðkomu í London og hjá Frank Zappa.
Barlómur fer eigin leiðir um blúsinn með Muddy Waters, B.B. King og Buddy Guy í farteskinu, Peter Green og Fleetwood Mac á leiðinni og Allman Brothers í beygjunum. Zappa slæðist líka með — án þess að hafa verið spurður álits.
Gamall blús, kjökur og kveinstafir. Ný vandamál.
Frítt er á tónleikana og þeir unnir í samstarfi við Menningarbæjinn Hafnarfjörð sem styrkir verkefnið.