Frá fjölmiðlum til fræða - Málþing til heiðurs Birgi Guðmundssyni

Frá fjölmiðlum til fræða - Málþing til heiðurs Birgi Guðmundssyni

Háskólinn á Akureyri, Norðurslóð 2, 600 Akureyri Directions

Fri Nov 06 2026 13:00

Öll hjartanlega velkomin á málþing til heiðurs Birgi Guðmundssyni, prófessor emeritus við Háskólann á Akureyri

Föstudaginn 6. nóvember kemur fjölbreyttur hópur fræðafólks, fjölmiðlafólks, samstarfsfólks og fyrrverandi stúdenta saman í Háskólanum á Akureyri á málþinginu Frá fjölmiðlum til fræða

👉 Þátttakendur eru beðnir að skrá sig á málþingið hér: https://www.unak.is/is/fra-fjolmidlum-til-fraeda

Tilefni málþingsins er sjötugsafmæli Birgis en um leið verður sjónum beint að merkum tímamótum í sögu íslenskra fjölmiðla. Árið 2026 eru 100 ár liðin frá stofnun fyrstu útvarpsstöðvarinnar á Íslandi, 60 ár frá fyrstu sjónvarpsútsendingu RÚV og 40 ár frá því að Bylgjan fór í loftið.

Birgir hefur um árabil starfað við kennslu og rannsóknir við Háskólann á Akureyri, meðal annars á sviði fjölmiðla, stjórnmála og samfélags. Á málþinginu verður ferill hans og framlag til fræðasamfélagsins heiðrað um leið og litið verður yfir þróun íslenskra fjölmiðla og fjölmiðlaumhverfis.

Á dagskrá verða fjölbreytt erindi og samtöl um meðal annars fjölmiðlanám og fagmennsku, rannsóknir á fjölmiðlum og stjórnmálum og fjölmiðla á 21. öld.

📅 Föstudagur 6. nóvember

📍 Háskólinn á Akureyri

Að málþingi loknu verða léttar veitingar í boði.

👉 Nánari upplýsingar og dagskrá: https://www.unak.is/is/samfelagid/vidburdir/fra-fjolmidlum-til-fraeda

Öll hjartanlega velkomin!