Frá hungri til hlekkja í Kaupmannahöfn
Endurmenntun HÍ, Dunhagi 7, 107 Reykjavík Directions
Tue Feb 16 2027 19:30
Hungraður maður stal færi, og annar smjörklípu. Fyrir slík brot gátu Íslendingar á 18. öld átt yfir höfði sér ævilanga þrælkun í fangelsum Kaupmannahafnar.
Hungraður maður stal færi á meðan annar stal sér smjörklípu. Fyrir brot sem þessi gátu Íslendingar á 18. öld átt yfir höfði sér ævilanga þrælkun í fangelsum Kaupmannahafnar.
Á þessu námskeiði verður fjallað um örlög íslenskra karla og kvenna sem dæmd voru til refsivistar í Kaupmannahöfn á árunum 1730 – 1830. Mörg þeirra höfðu gerst sek um þjófnað á matvælum eða öðrum nytjahlutum, alla jafna við aðstæður þar sem afkoma þeirra og fjölskyldna þeirra var í húfi.
Sérstök áhersla verður lögð á harðindaárin 1756 – 1759 þegar lífskjör versnuðu víða um land og sífellt fleiri áttu erfitt með að sjá sér farborða. Skoðað verður hvernig harðindi, fátækt og samfélagsleg staða gátu leitt fólk inn í refsikerfið og hvaða afleiðingar dómarnir höfðu fyrir hina dæmdu og fjölskyldur þeirra.
Jafnframt verður fjallað um þróun refsinga á Íslandi, flutning sakamanna til Danmerkur og hvað beið þeirra í fangahúsum Kaupmannahafnar. Einnig verður rakin saga fyrsta fangelsisins á Íslandi, sem reist var á árunum 1761 – 1771 með þátttöku dæmdra fanga sjálfra.
Kennslan byggir á rannsóknum kennara þar sem íslenskar og danskar frumheimildir á borð við dómskjöl, fangaskrár, kirkjubækur og önnur samtímagögn varpa ljósi á líf þess fólks sem lægst var sett í samfélagi 18. og 19. aldar.
Námskeiðið er ætlað öllum sem hafa áhuga á íslenskri sögu, félags- og menningarsögu, réttarsögu, ættfræði og lífskjörum almennings fyrr á tímum. Engar forkröfur eru gerðar um fyrri þekkingu.
Efni og ávinningur
Á námskeiðinu er fjallað um:
- Harðindi og lífskjör almennings á Íslandi á 18. og 19. öld.
- Tengsl hungurs, fátæktar og afbrota.
- Þjófnað og önnur algeng brot meðal fólks sem bjó við skort og örbirgð.
- Íslenska dómskerfið og refsingar á 18. og fyrri hluta 19. aldar.
- Flutning dæmdra Íslendinga til Kaupmannahafnar.
- Lífið í fangahúsum Kaupmannahafnar.
- Byggingu fyrsta fangelsisins á Íslandi og þátt fanga í framkvæmdinni.
- Einstaklingssögur forfeðra okkar sem voru dæmdir úr landi.
- Örlög þeirra sem lifðu af og þeirra sem létust í fangelsi fjarri heimahögum.
Ávinningur þinn:
- Þú kynnist lítt þekktum kafla íslenskrar sögu.
- Aukinn skilningur á áhrifum harðinda og fátæktar á daglegt líf fólks.
- Innsýn í þróun refsinga og fangelsismála á Íslandi.
- Þú kynnist örlögum einstaklinga sem hurfu úr íslensku samfélagi inn í danskt refsikerfi.
- Þú fræðist um söguleg sakamál út frá félagslegum og mannlegum forsendum.
- Þú kynnist frumheimildum og rannsóknaraðferðum sagnfræðinnar.
- Dýpri skilningur á stöðu þeirra sem lægst stóðu í íslensku samfélagi fyrri alda.