Fræðsla um krefjandi samskipti vegna geðraskana og spjall með stjórn
Glerárkirkja, Bugðusíða 3, 603 Akureyri Directions
Thu Oct 29 2026 17:00
Fræðsla og samtal fyrir stuðninghsóp fósturforeldra á Akureyri í söfnunarheimili Glerárkirkju.
Dr. Gísli Kort Kristófersson sérfræðingur í geðhjúkrun mun leiða þátttakendur í fræðslu, samræðum og verkefnavinnu til að styðja fósturforeldra að geta betur leyst úr krefjandi samskiptum við fósturbörn og aðra sem tengjast barninu vegna geðraskaskana. Að því loknu verður þátttakendum boðið til kvöldverðar. Svo tekur við samtal við stjórnarfólk félagsins og framkvæmdastjóra sem munu mæta á viðburðinn til að hitta hópinn.
Mikilvægt er að þátttakendur skrái sig til þátttöku svo áætla megi innkaup fyrir viðburð.
Dagskrá:
17:00 - Fræðsla með Gísla Kort hefst
19:00 - Kvöldverður
19:45 - Samtal með stjórn
21:00 - Viðburði lýkur
Stjórn félagsins vonast til að sjá sem allra flesta fósturforeldra af Norðurlandi og býður þau sem búsett eru annarstaðar á landinu einnig velkomin.
Skilyrði fyrir þátttöku er að viðkomandi sé skráður í félagið og í skilum á félagsgjöldum.