Fræðsla um ungbarnanudd
Mosfellsbær public library, Þverholt 2, 270 Mosfellsbær Directions
Wed Oct 28 2026 10:00
Á þessari fræðandi og hagnýtu stund fá foreldrar innsýn í ungbarnanudd. Þau kynnast því hvernig einfaldar strokur og markviss snerting geta stutt við tengslamyndun, ró og vellíðan barnsins.
Í fyrirlestrinum verður m.a. fjallað um hvað ungbarnanudd er og á hverju það byggir. Einnig verður rætt um ávinning þess fyrir barn og foreldra, hvernig hægt er að nýta nuddið í daglegu lífi og hvernig lesa má í merki barnsins og laga stundina að þörfum þess.
Boðið verður upp á stutta sýnikennslu þar sem foreldrar læra einfaldar strokur fyrir fótleggi og fætur barnsins. Foreldrar geta æft strokurnar á barninu sínu eða á sérhönnuðum nudddúkkum sem verða á staðnum.
Fræðslan hentar foreldrum með börn frá fæðingu og fram að skriðaldri, sem og verðandi foreldrum.
Fyrirlesari er Hafdís Ósk Jónsdóttir sem er vottaður leiðbeinandi í ungbarnanuddi, heilsunuddari og kennslufræðingur.