Fyrsta æfing Barnakórs Hallgrímskirkju
Hallgrímskirkja, Hallgrímstorg 1, 101 Reykjavík Directions
Wed Sep 16 2026 16:30
Skráning í Barnakór Hallgrímskirkju er hafin og verður fyrsta æfing miðvikudaginn 16. september kl. 16:30-17:30.
Barnakórinn er fyrir 8–11 ára krakka sem hafa gaman af söng og tónlist. Þar fá börnin að syngja, kynnast fjölbreyttri tónlist og efla sjálfstraust, sönggleði og samvinnu í notalegu og öruggu umhverfi.
Kórstjóri: Stefán Nordal
Æfingar eru á miðvikudögum kl. 16:30–17:30 í Norðursal Hallgrímskirkju
Kórinn tekur þátt í ýmsum viðburðum Hallgrímskirkju á árinu, m.a. Söngvahátíð barnanna á Sumardaginn fyrsta og fjölskylduguðsþjónustu á aðventunni.
Staðfestingargjald er 3.900 kr. og sérhannaður kórbolur fylgir!
Ef barnið þitt hefur gaman af að syngja og vera hluti af skemmtilegum hópi er Barnakór Hallgrímskirkju rétti staðurinn.
HALLGRÍMSKIRKJA – STAÐUR BARNANNA