Gersemi

Gersemi

Gersemi, Brekkugata 5 Directions

Sat 29.08.2026 11:00

Gersemi

Dýrgripir – lifandi listaverk sem verður til í samtali við gesti.

Listakonan Unnur Stella Níelsdóttir býður almenningi að taka þátt í lifandi listaverki í miðbæ Akureyrar á Akureyrarvöku.

Dýrgripir er þátttökumiðað samtímalistaverk þar sem Unnur Stella málar eitt stórt listaverk á staðnum yfir daginn. Gestir hátíðarinnar geta komið við, fylgst með málverkinu verða til og deilt sögu af sínum persónulega dýrgrip.

Gestir eru spurðir: „Hvað er þinn dýrgripur?“

Dýrgripurinn þarf að vera hlutur, en hann þarf ekki að vera verðmætur í peningalegum skilningi. Það getur verið skel sem þú fannst á ströndinni, blóm sem þú heldur upp á, gamall bolli, ljósmynd eða eitthvað sem þú geymir í skáp eða skúffu og hefur haldið upp á í langan tíma.

Unnur Stella er ein að mála verkið en túlkar hugmyndir og frásagnir þátttakenda beint inn í málverkið. Þannig verða sögur og dýrgripir fólks hluti af einu stóru sameiginlegu listaverki sem mótast í samtali við Akureyringa og verður til fyrir framan gesti hátíðarinnar.

Verkið verður málað á Kaffistofunni í miðbæ Akureyrar og fólk getur komið og farið að vild. Þátttakan getur falist í stuttu samtali, þar sem gestur deilir sínum dýrgrip, eða einfaldlega í því að fylgjast með verkinu þróast yfir daginn.

Að Akureyrarvöku lokinni verður verkið til sýnis á Terían Brasserie um tíma og lifir þar áfram sem sameiginlegt listaverk Akureyringa og sjónræn samantekt á þeim sögum, minningum og dýrgripum sem urðu hluti af sköpun þess.

Öll eru velkomin!

Verkefnið er styrkt af Listasumri á Akureyri.

Performers

  • Unnur Stella Níelsdóttir
    Unnur Stella Níelsdóttir

    Listmálari og listakona frá Akureyri

  • Akureyrarvaka
    Akureyrarvaka

    The Anniversary of Akureyri Municipality is celebrated annually on the weekend closest to the day of establishment which is the 29th of August. It´s a celebration including cultural events like exhibitions, visual art, music, science and so on.