Gestaboð Kristjönu, undir fadoáhrifum!

Gestaboð Kristjönu, undir fadoáhrifum!

Live Stream - GMT, , Reykjavík Directions

Fri 02.10.2026 20:00

Gestaboð Kristjönu undir Fadoáhrifum.

FORSALA:

Hefst mánudaginn 1. sept. í Bergi menningarhúsi Dalvík

berg@dalvikurbyggd.is 460 4931

á opnunartíma bóksafnsins.

Opnunartími: Virkir dagar: 11:00-17:00

Laugardagar: 13:00-16:00

Sunnudagar: LOKAÐ

MIÐAVERÐ Í FORSÖLU: 6.500.- KR.

FORSÖLU LÝKUR 1. OKT.

MIÐAVERÐ VIÐ HURÐ 2.okt - 7.500.- KR.

berg@dalvikurbyggd.is

460 4931

ATH. Á tónleikadegi frá kl. 18:00-19:30 verður hægt að kaupa fiskisúpu á "Hólnum" veitingastað menningarhússins.

Pantanir í síma: 842 1978. Fyrstir panta fyrstir fá!

TÓNLEIKAR HEFJAST KL. 20:00!

Jose Manuel Neto hinn þekkti portúgalski fadogítarleikari mun koma fram á tónleikum mínum föstudaginn 2.október kl.20.00.

Við munum endurtaka leikinn frá því í Hörpu á síðasta ári en núna fyrir norðan. Við munum spila nýju lögin mín í fadobúningi og önnur þekktari lög sem passa einstaklega vel við fadogítarinn.

Það eru mikil forréttindi að fá að vinna með Jose og það er unun á að hlýða hann leika af fingrum fram, en hann mun færa okkar ekta fado beint í æð. Fado er ástríðu og tegafullt tónlistarform sem felur í sér mikla túlkun í gegnum sögur en einnig án söngs en þá tekur þessi sérstaki hljómur Fadogítarssins við. Þetta eru þjóðlög þeirra portúgala. Jose Manuel er vel þekktur í bransanum í Lissabon og er mikið bókaður ram í tímann, en vildi alls ekki sleppa að koma til íslands og koma norður á heimaslóðir mínar. Mikill heiður það.

En það eru einnig forréttindi að hafa góðan bakhjarl eins og Menningar- og viðurkenningarsjóður Dalvíkurbyggðar er. Mér var veittur styrkur til þess að bjóða Jose til landsins og að halda þessa tónleika undir "Fadoáhrifum". Það ber svo sannarlega að þakka🌹

Jose spilar yfirleitt í stórum og fallegum sölum vítt um Portúgal en finnst ekki síður gott að spila á litlu stöðunum þar sem nándin er mikil.

Og það munum við Örn Eldjárn, Jón Rafnsson og Jose Manuel Neto gera, föstudagskvöldið 2. október í Bergi menningarhúsi á Dalvík.

Listrænn stjórnandi; Aðalbjörg Kristín Jóhannsdóttir

Hlökkum til að sjá ykkur.

Kær kveðja,

Kristjana.

Performers