GG Blús & Bláa Brassið á Ægi

GG Blús & Bláa Brassið á Ægi

ÆGIR 220 brugghús, Strandgata 90, 220 Hafnarfjörður Directions

Fri Nov 06 2026 21:00

GG BLÚS og BLÁA BRASSIÐ blása til tónleika á Ægir 220, Hafnarfirði,

föstudaginn 6. nóvember.

Þar leiða saman hesta sína tvö kröftug frumefni.

Annars vegar - Blúsrokkaður bílsskúrsdúett með kófsveitt gítarriff og kraftmikinn tvísöng, í takt við grúfþungan trommuslátt:

Guðmundur Jónsson – gítar, söngur

Guðmundur Gunnlaugsson – trommur, söngur

Og hins vegar - Fönkað brass-tríó, er með hvellþéttum hljóm hinna hjartahreinu skreytir sígrænu blúsfrasana með djasskenndum sólóspuna:

Steinar Sigurðarson – saxófónn

Snorri Sigurðarson – trompet

Haukur Gröndal – baríton saxófónn

Fluttar verða velvaldar blúsábreiður liðinna kynslóða ásamt frumsömdum ópusum.

Ægir opnar kl. 19.

Tónleikarnir hefjast kl. 21:00 og er miðaverð 3.900 kr.

Hægt er að versla miða bæði á stubb.is og við innganginn.

Sjáumst!

Performers