Gríptu jólagæsina!

Gríptu jólagæsina!

Reykjavik, , Reykjavík Directions

Fri Dec 18 2026 19:30

,,Gríptu jólagæsina!” er nýr jólasöngleikur eftir Dúó Jöklu (Ólína Ákadóttir og Steinunn María Þormar) og þér er boðið!

Sýningin verður haldin í stofu í 105 Reykjavík þar sem býðst einstakt tækifæri til að upplifa jólastemninguna í heimilislegu og nánu umhverfi.

Í söngleiknum ,,Gríptu jólagæsina!” hittum við tvær vinkonur sem ræða jólin og allt sem þeim fylgir í gegnum spjall og söng.

Sýningin er flutt 18. og 19. desember kl. 19:30.

,,Gríptu jólagæsina” er haldin í heimahúsi sem þýðir að það er afar takmarkaður fjöldi sæta í boði. Það er nauðsynlegt að hafa samband við Ólínu eða Steinunni Maríu í gegnum Facebook skilaboð eða í tölvupósti. Mundu að taka fram fjölda miða og dagsetningu og við sendum þér nánari upplýsingar.

olina.akadottir@gmail.com

Miðaverð: 4.900 kr.

Ykkar tími til að grípa jólagæsina er núna!

———

Dúó Jökla samanstendur af Steinunni Maríu Þormar söngkonu og Ólínu Ákadóttur píanóleikara. Þær hafa unnið mikið með söngleikjaformið þar sem þær taka tónverk úr ýmsum áttum og tengja saman gegnum leik. Nýlega settu þær saman söngleikinn ,,Þar lá mín leið” byggðan á verkum eftir Jórunni Viðar. Sýningin sló svo sannarlega í gegn og var flutt víða á Íslandi og í Danmörku. Einnig unnu þær að barnasýningunni ,,Tröllkonan og töfraeyjan” ásamt kammerhópnum Stundarómi. Sú sýning var flutt víða um Ísland og Noreg, þar á meðal á Óperudögum 2025.