Hallgrímshátíð í Saurbæ 24.-25.október 2026
Hallgrímskirkja í Saurbæ, Saurbær, 301 Reykjavík Directions
Sat Oct 24 2026 16:00
Hallgrímshátíð 2026 hefst með tónleikum kl. 16.00 á laugardag.Þar verður flutt fögur og sjaldheyrð tónlist tileinkuð Maríu Guðsmóður og ljóðum Hallgríms Péturssonar.
Flytjendahópur er óvenjulegur; sönghópur karlaradda, forn blásturshljóðfæri, mezzósópran og orgel.
Sjá einnig sérstaka Fb.kynningu. Aðgangur er ókeypis.
Á sunnudag verður hátíðarmessa kl. 14.00, síðan kirkjukaffi í boði sóknarnefndar í Sumarbúðum KFUM í Vatnaskógi og að lokum dagskrá í kirkjunni kl. 16.30 þar sem þess verður minnst að 360 ár eru liðin frá fyrstu útgáfu Passíusálmanna, en þeir voru prentaðir á Hólum í Hjaltadal árið 1666.
Frú Agnes M. Sigurðardóttir predikar í messunni, prestar prestakallsins þjóna, Kór Saurbæjarprestakalls syngur og Benedikt Kristjánsson syngur einsöng. Organisti er Jóhanna Marín Óskardóttir. RUV hljóðritar messuna og verður henni útvarpað síðar.
Á dagskránni kl. 16.30 flytur sr. Kristján Valur Ingólfsson erindi um útgáfur Passíusálmanna og sýning verður á nokkrum útgáfum þeirra sem gefnar hafa verið til Hallgrímskirkju í Saurbæ.
Tónlistin er tileinkuð minningu Smára Ólasonar, (1946-2023), organista og kirkjutónlistarfræðings sem hefði orðið áttræður í ár. Smári safnaði, rannsakaði, skráði á nótur og útsetti hin “gömlu” lög við Passíusálmana sem hljóðrituð voru víðs vegar um landið á síðustu öld. Ásta Marý Stefánsdóttir, sópran og Guðmundur Sigurðsson, organisti flytja sálmalög í útsetningu Smára og Guðmundur leikur orgelverk samin út frá stefjum sálmanna eftir Smára Ólason.