Hananú! | Sigrún Pálsdóttir

Hananú! | Sigrún Pálsdóttir

Kópavogur library, Hamraborg 6a, 200 Kópavogur Directions

Wed Nov 11 2026 16:00

Sigrún Pálsdóttir verður gestur í Hananú á 2. hæð aðalsafns. Hún mun fjalla um bók sína Blái pardusinn.

Sigrún Pálsdóttir lauk doktorsprófi í sagnfræði frá University of Oxford árið 2001. Frá námslokum hefur hún unnið við rannsóknir, ritstjórn, skriftir og skáldskap. Bækur hennar hafa verið þýddar á fjölda tungumála, verið tilnefndar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna, Fjöruverðlaunanna, Menningarverðlauna DV og Viðurkenningar Hagþenkis, og unnið til Bóksalaverðlaunanna. Fyrir skáldsöguna Delluferðina hlaut Sigrún Bókmenntaverðlaun Evrópusambandsins árið 2021. Blái pardusinn, hennar nýjasta skáldsaga, hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin árið 2025.

_________________________________________________________

Bókmenntaklúbburinn Hananú! hittist í Huldustofu á 3. hæð aðalsafns.

Annan hvern miðvikudag hittist á bókasafninu fremur siðprúður hópur fólks og ræðir hinar fögru orðlistir. Komið bara og gangið í bæinn, tölum um bækur – og Hananú!

Fylgist með í Facebook-hópnum Bókmenntaklúbburinn Hananú | Bókasafn Kópavogs.