Haraldur Hreinsson á Krossgötum: Siðaskiptin í Færeyjum og á Grænlandi
Neskirkja, Hagatorg, 107 Reykjavík Directions
Mon Oct 19 2026 13:00
Í fyrirlestrinum verður fjallað um vöxt og viðgang mótmælendakristni á Færeyjum og Grænlandi.
Þeirri sögu vindur fram á ólíkum tímabilum í tilviki hvors lands fyrir sig: Siðbreytingin barst til Færeyja á svipuðum tíma og á Íslandi, þ.e. um miðja 16. öld en mun síðar á Grænlandi, þ.e. á fyrri hluta 18. aldar þegar trúboðshreyfingar frá Danmörku og Þýskalandi létu til sín taka á þeim slóðum.
Fjallað verður um bakgrunn þessarar atburðarásar, helstu viðburði hennar og mikilvæga leikendur.