Hátíð í bæ

Hátíð í bæ

Hafnarfjarðarkirkja, Strandgata 51, 220 Hafnarfjörður Directions

Sat Dec 05 2026 17:00

Senn líður að jólum og þar með auðvitað að tónleikum Jólahjóna sem að þessu sinni verða haldnir laugardaginn 5. desember kl. 17:00 í Hafnarfjarðarkirkju. Fyrstu tónleikarnir voru haldnir 2011 svo nú eru það orðin 15 ár sem hjónin hafa haldið uppi jólastuðinu í Hafnarfjarðarkirkju á aðventunni. Þau Jóhanna Ósk Valsdóttir, Bjartur Logi Guðnason, Örvar Már Kristinsson og Þóra Bergljótar Björnsdóttir verða við sama heygarðshornið og munu sem fyrr bregða á leik og bresta í söng og er viðbúið að þau komi öllum í jólaskap. Ekki verður brugðið út af þeirri venju að hafa á dagskránni hátíðleg jólalög í bland við minna hátíðleg jólalög og ekki verður töluð vitleysan milli laga frekar en verið hefur. Að venju er frítt inn og öll velkomin meðan húsrúm leyfir.

Performers