Hátíðardagskrá og styrkveiting úr Minningarsjóði frú Stefaníu Guðmundsdóttur
Iðnó, Vonarstræti 3, 101 Reykjavík Directions
Sun Dec 06 2026 13:00
Frú Stefanía - arfleifð á leiksviði
Minningarsjóður frú Stefaníu Guðmundsdóttur býður til hátíðardagskrár í Iðnó í tilefni af 150 ára fæðingarafmæli Stefaníu Guðmundsdóttur leikkonu og brautryðjanda í íslenskri leiklist.
Við minnumst Stefaníu, skyggnumst inn í sögu íslenskrar leiklistar og veitum viðurkenningu fyrir framúrskarandi framlag til sviðslista.
Boðið verður uppá léttar veitingar
🗓️ Sunnudaginn 6. desember 2026
⏰ kl. 13–15
📍 Hátíðarsalur Iðnó
DAGSKRÁ
• Stjórn minningarsjóðsins býður gesti velkomna.
• Sigríður Jónsdóttir fjallar um Stefaníu Guðmundsdóttur.
• Magnús Þór Þorbergsson segir frá rannsóknum á leiklist Vesturfara og fjallar um 130 ára afmæli Leikfélags Reykjavíkur.
• Sara Margrét Ragnarsdóttir kynnir „Myndasafn Stefaníu“, sem verður opnað formlega á vef Landsbókasafnsins við þetta tækifæri.
• Sunna Borg flytur söguljóðið „Bergljót" eftir Bjørnstjerne Bjørnson við píanóleik Alexanders Edelstein. Tónlist eftir Edvard Grieg og höfundur þýðingar er Þórarinn Eldjárn.
• Afhending Stefaníustjakans - viðurkenningar Minningarsjóðs frú Stefaníu Guðmundsdóttur, fyrir framúrskarandi framlag til sviðslista.
Verið hjartanlega velkomin í Iðnó!