Hausar og andlitsmyndir - Aðalsteinn Þórsson sýnir í Leyni.

Hausar og andlitsmyndir - Aðalsteinn Þórsson sýnir í Leyni.

Leyni, Hafnarstræti 95, 600 Akureyri Directions

Thu Oct 22 2026 20:00

Aðalsteinn sýnir myndir frá ýmsum tímum á ferlinum sem eru ólíkar í efnistökum og aðferðum en eiga það sameiginlegt að vera af höfðum manna eða vætta. Myndirna eru gerðar með olíulitum, akríl, bleki, gouache eða viðarkoli á pappír eða hördúk. Elsta myndin er frá aldamótum en sú yngsta var kláruð núna á vordögum.

Segja má að teikning og málun hafi undan farin ár verið hliðargrein í sköpun Aðalsteins, engu að síður er um graf alvarlega hliðargrein að ræða. Hér byrjaði þetta allt, með línu á blaði og hvað heillar mannshugan meir en andlit hins? Við erum þannig tengd, við getum ekki annað. Frá okkar fyrstu tengslum við andlit móðurinnar sem hvítvoðungar halda þau áfram í gegn um lífið bæði til góðs og ills, alltaf erum við að lesa í andlit hins og látbragð.

Hér getur að líta hefðbundin portrett - andlismyndir og myndir af hausum úr hugarheimi listamannsins. Fæst verkanna hafa verið sýnd áður í efninu þó einhver hafi sést á samfélagsmiðlum.

Aðalsteinn úskrifaðist frá Myndlistardeild Myndlistaskólans á Akureyri árið 1993. Hann lauk Masters námi í frjálsri myndlist frá The Dutch Art Institute (þá AKI2) í borginni Enschede í Hollandi 1998. Síðan 2016 hefur hann verið starfandi myndlistarmaður á stór Eyjafjarðarsvæðinu. Helsta verkefnið Aðalsteins er Einkasafnið í Eyjafjarðarsveit þar sem hann safnar afgöngum lífs síns.

Undanfarnar sýningar: Hédna samsýning félaga í Myndlistarfélaginu í Hofi. Heimalingar 26, útilistasýning við Dyngjuna - listhús í Eyjafjarðarsveit. Liðssafnaður - málamiðlun, Fræðasetur um forystufé í Þistilfirði og samsýningin Rúllandi snjóbolti 19, í samtímalistasafninu Ars Longa á Djúpavogi.

https://steini.art/ er vefsíða Aðalsteins

Sýningin er sölusýning og er opin á opnunartíma LEYNI.