Haustfundur flokksstjórnar

Haustfundur flokksstjórnar

Suðurnesjabær, Hjallagata 3, 245 Sandgerði Directions

Sat Oct 10 2026 12:00

Flokksstjórnarfundur verður haldinn í Samkomuhúsinu í Sandgerði í Suðurnesjabæ laugardaginn 10. október.

Boðið verður upp á rútuferð fyrir alla félaga frá Reykjavík kl. 9:30 frá bílastæðinu við Hús verslunarinnar. Rútan mun keyra beint í Reykjanesbæ á fund Verkalýðsmálaráðs sem hefst kl. 10:30. Gestur fundarins er Finnbjörn Hermannsson forseti ASÍ ásamt öðrum góðum gestum og munu þau ræða saman um stöðu kjarasamninga. Þar næst keyrir rútan að Samkomuhúsinu í Sandgerði þar sem flokksstjórnarfundurinn verður haldinn.

Heimferð verður til Reykjavíkur kl. 23 eftir skemmtun og mat.

Þú getur skráð þig í rútuna um leið og þú skráir þig á fundinn: https://forms.gle/FCdfTK1C6cbkGQME8

Helstu tímasetningar

09:30 - Lagt af stað frá Reykjavík með rútu

10:30 - Fundur Verkalýðsmálaráðs

12:00 - Húsið opnar, skráning og hádegismatur

12:30 - Fundur settur

14:15 - Kynningar frambjóðenda til varaformanns

14:30 - Kaffihlé og kosning- veitingar frá kvenfélaginu Gefn

17:00 - Fundi slitið

17:00 - 23:00 - Gleðistund, kvöldmatur og skemmtiatriði

23:00 - Rúta til Reykjavíkur

Um kvöldið verður slegið upp Októberfest, pretzel, pylsur og sauerkraut verða á boðstólum.

Hobbitarnir frá Suðurnesjum sjá um að skemmta gestum. Dúettinn skipa þeir Ólafur Þór Ólafsson og Hlynur Þór Valsson sem eru „heimsfrægir” í Suðurnesjabæ en hafa spilað um allt land í gegnum tíðina við góðan orðstír.

Þetta er partý sem enginn vill láta fram hjá sér fara.

Kaffi- og fundargjald er 4.000 og 3.000 fyrir námsmenn, lífeyrisþega og fólk á fjárhagsaðstoð. Kvöldverður og teiti á 7.000 og 6.000 fyrir námsmenn, lífeyrisþega og fólk á fjárhagsaðstoð, greiðist inn á bk. 0111 hb. 26 rknr. 19928 - kt. 690199-2899.

Kvöldverður og skemmtun kostar 7.000 og 6.000 fyrir námsmenn, lífeyrisþega og fólk á fjárhagsaðstoð greiðist inn á bk. 0111 hb. 26 rknr. 19928 - kt. 690199-2899.

Performers