Hausttónleikar Bubba Morthens
Von, Efstaleiti 5, 103 Reykjavík Directions
Wed Oct 07 2026 20:00
Bubbi Morthens í Von – hausttónleikar SÁÁ
Í tilefni af afmæli SÁÁ býður SÁÁ landsmönnum á tónleika með Bubba Morthens í Von, Efstaleiti 7, miðvikudaginn 7. október kl. 20:00.
Bubbi hefur undanfarin ár haldið tónleika í Von að vori, en að þessu sinni færast tónleikarnir yfir á haustið og verða haldnir í tilefni afmælis SÁÁ.
Það er okkur mikill heiður að fá Bubba Morthens, einn ástsælasta tónlistarmann þjóðarinnar, til okkar á þessum tímamótum. Von er hlýlegt og einlægt rými þar sem stuðningur, von og batavinna mætast og því einstaklega viðeigandi staður til að koma saman, njóta tónlistar og fagna afmælinu.
📍 Von, Efstaleiti 7, Reykjavík
📅 Miðvikudaginn 7. október
🕗 Kl. 20:00
🎶 Ókeypis aðgangur – á meðan húsrúm leyfir.
Við biðjum gesti að skrá sig svo við getum áætlað fjölda. Skráningin er eingöngu til að auðvelda skipulagningu og felur ekki í sér frátekið sæti.
Nánari upplýsingar og skráning:
https://www.saa.is/is/um-saa/vidburdir/bubba-morthens-tonleikar
Tónleikarnir eru öllum opnir. Hlökkum til að sjá ykkur!