Heilakaffi í Hæðargarði

Heilakaffi í Hæðargarði

Félagsmiðstöðin í Hæðargarði 31, Hæðargarður 31, 108 Reykjavík Directions

Thu Dec 03 2026 17:00

Heilakaffi fyrir einstaklinga með heilabilun og aðstandendur þeirra.

DAGSKRÁ

Rithöfundurinn Jóna Valborg Árnadóttir kemur og segir aðeins frá sjálfri sér og les upp úr nýju bókinni sinni Skúffuskáldið.

Kaffiveitingar

Í lokin stjórnar Sveinn Arnar Sæmundsson samsöng og spilar undir á píanó. Að þessu sinni verða jólalögin í forgrunni.

TILGANGUR

Gefa fólki tækifæri til að koma saman og eiga notalega stund. Tilvalinn vettvangur til að hittast, hlýða á stutt erindi/skemmtun, spjalla og gæða sér á kaffi og góðum veitingum.

👥 FYRIR HVERJA

Heilakaffi er ætlað fólki með heilabilun og aðstandendum þeirra.

AÐRAR UPPLÝSINGAR

Engin þörf á að skrá sig - bara að mæta.

Kaffigjald er 500 kr. en það eru Sóroptimistar sem sjá um kaffi og veitingar.

Hlökkum til að sjá ykkur sem flest.