Heilandi máttur hvíldar kyrrðarhelgi í Yogavin

Heilandi máttur hvíldar kyrrðarhelgi í Yogavin

Yogavin, Grensásvegur 16, 108 Reykjavík Directions

Sat 26.09.2026 08:00

ISK 49000.00
Tickets / Registration

HEILANDI MÁTTUR HVÍLDAR

Kyrrðahelgi með Ástu Arnardóttur

26 - 27 sept

Verð 49.000 - innifalið hádegimatur, 1 prufuvika í Yogavin og 50% afsláttur af mánaðarkorti

Korthafar á haustönn fá 30% afslátt

Skráning yoga@yogavin.is

www.yogavin.is

Kyrrðarhelgin er nærandi tími til að hægja á og hlúa að líkama og sál á hjartnæman hátt. Með sjálfsmildi og alúð að leiðarljósi könnum við heilandi mátt hvíldar.

Núvitund hugleiðsla

Yin yoga

Yoga nidra djúpslökun

Fléttað saman fræðslu og iðkun á skapandi og heilnæman hátt þar sem þátttakendur fá beina reynslu af heilandi áhrifum yogaiðkunar, djúpri hvíld og endurheimt lífsorku.

Kennd grunntæknin í yin yoga, núvitund og yoga nidra. Fjallað um áhrif á líkama, taugakerfið, orkusvið og huga.

Hvatning til að heiðra þína leið til heilunar, innsæis og hjartagæsku.

Kyrrðarhelgin fer fram í þögn sem gefur djúpa og nærandi hvíld frá erilsömu lífi og dagsins önn.

Kyrrðahelgin er opin öllum og jafnframt fyrsta lota í 60 tíma yogakennaranámi í Yin yoga & núvitund.

ÁSTA ARNARDÓTTIR hefur víðtæka reynslu af iðkun og kennslu yoga og núvitundar. Hún hefur kennt yoga frá 1999. Hún er stofnfélagi Félags umvipassana hugleiðslu og hefur kennt kyrrðarvökur á vegum félagsins frá 2011. Ásta hefur stundað vipassana hugleiðslu frá 1997 og farið reglulega á kyrrðarvökur (silent retreat) til Gaia House, Spirit Rock Meditation Center og IMS en þar tók hún þátt í 3 mánaðar kyrrðarvöku haustið 2013. Ásta hefur kennt yogakennaranám frá 2010 og býður nú uppá nýtt yogakennaranám Yin yoga & núvitund 50 tímar og Yoga nidra & tónheilun 50 tímar. Þau sem ljúka kyrrðarvöku geta skráð sig í þessi tvö kennaranám. Ásta leggur áherslu á skapandi og persónulega iðkun þar sem hver og einn finnur aukið frelsi og dýpri sátt.

SKRÁNING yoga@yogavin.is

NÁNARI UPPLÝSINGAR www.yogavin.is