Heilbrigð mörk í starfi

Heilbrigð mörk í starfi

Endurmenntun HÍ, Dunhagi 7, 107 Reykjavík Directions

Tue Feb 16 2027 12:30

Hvernig er hægt að setja öðrum mörk í starfi á faglegan hátt?

Á þessu hagnýta námskeiði lærir þú að greina eigin mörk og tjá þau af festu og virðingu án þess að skerða góð samskipti og samstarf. Fjallað verður um mörk í starfi, hvaða hlutverki þau gegna og hvað getur gert okkur erfitt fyrir að setja þau. Þátttakendur skoða eigin viðbrögð og samskiptamynstur, hvað skiptir þá máli og við hvaða aðstæður reynir helst á mörkin.

Námskeiðið byggir á blöndu af fræðslu, umræðum og verklegum æfingum. Unnið verður með raunverulegar aðstæður úr eigin starfsumhverfi og þátttakendur undirbúa samtal eða næstu skref sem nýtast þeim í starfi.

Námskeiðið er ætlað starfsfólki, sérfræðingum og stjórnendum sem vilja efla færni sína við að setja skýr mörk í starfi og eiga árangursrík samskipti. Það hentar meðal annars þeim sem taka gjarnan á sig mikla ábyrgð eða vilja verða öruggari í að standa með eigin þörfum og sjónarmiðum. Engar forkröfur eru gerðar.

Ekki er þörf á sérstökum undirbúningi eða fartölvu. Þátttakendur eru þó hvattir til að hafa í huga raunverulegar aðstæður úr eigin starfsumhverfi þar sem þeir vilja setja skýrari mörk eða undirbúa samtal. Gert er ráð fyrir virkri þátttöku í umræðum og æfingum, en hver og einn ræður hversu miklu hann deilir með hópnum.

Efni og ávinningur

Á námskeiðinu er fjallað um:

  • Hvað mörk eru og hvers vegna þau skipta máli í starfi og samskiptum.
  • Tengsl sjálfsþekkingar, gilda og sjálfsvirðingar við hæfnina til að setja mörk.
  • Einkenni óskýrra, of opinna og of stífra marka.
  • Aðferðir til að setja mörk af festu og virðingu.
  • Undirbúning samtala og úrlausn raunverulegra aðstæðna úr starfsumhverfi þátttakenda.

Ávinningur þinn:

  • Þú þekkir eigin mörk betur og greinir fyrr þegar reynir á þau.
  • Þú tjáir þarfir þínar, sjónarmið og takmörk með skýrari hætti.
  • Þú setur mörk af meiri festu án þess að fórna góðum samskiptum.
  • Þú ferð af námskeiðinu með raunhæf næstu skref sem nýtast í eigin starfi.