HEIMA-SKAGI unga fólksins 2026

HEIMA-SKAGI unga fólksins 2026

Þorpið frístundamiðstöð, Þjóðbraut 13, 300 Akranes Directions

Fri Oct 30 2026 20:00

Það má segja að HEIMA-SKAGI verði tveggja daga hátíð í ár vegna þess við ætlum að bjóða unga fólkinu á Akranesi að vera með föstudagskvöldið 30. október - daginn fyrir HEIMA-SKAGA sem við þekkjum - í Arnardal/Þorpinu.

3 atriði sem verða á HEIMA-SKAGA á laugardeginum - yngsta tónlistarfólkið - ætlar að spila fyrir unga fólkið á Akranesi og það er frítt inn.

HEIMA-SKAGI unga fólksins er hluti af Barnamenningarhátíð vesturlands sem var sett í gær.

HEIMA-SKAGI unga fólksins er eingöngu fyrir 13-18 ára.

Jaðrakan er skagahljómsveit skipuð ungum skagastrákum

Karólína Orradóttir er 15 ára - dóttir Orra Harðarsonar.

Dóra og Döðlurnar eru nú þegar búnar að spila tvisvar á þessu ári á Akranesi - 6 stelpur úr Reykjavík sem eru búnar að spila saman í 8 ár.

Og það er frítt inn!

Performers