HEIMSKAUT - Útgáfuboð og listasýning

HEIMSKAUT - Útgáfuboð og listasýning

Mengi, Óðinsgata 2, 101 Reykjavík Directions

Sun Nov 01 2026 14:00

Verið velkomin að fagna með Moiru Dís Bichard útgáfu bókarinnar HEIMSKAUT í Mengi, Óðinsgötu 2 í Reykjavík milli kl. 14 - 20 sunnudaginn 1. nóvember.

Samtímis verður listasýning á málverkum Moiru Dísar því hún ætlar að sýna gestum frummyndir bókarinnar.

Sagan er um lítinn ref á snjóbreiðunni sem keppist við það hvern dag að finna mat og komast í hlýja bælið sitt fyrir myrkur. Hringrás náttúrunnar og fegurðin í hinu látlausa birtast í þessari hugljúfu heimskautasögu.

Léttar veitingar og góð samvera. Hjartanlega velkomin!

Heimskaut er fyrsta bók Moiru Dísar sem bæði höfundur mynda og texta. Hún er frá Eyrarbakka fædd 4. mars árið 2000 og hefur haldið á teikniblýanti alveg frá barnæsku. Hún er menntaður teiknari frá Myndlistaskóla Reykjavíkur og University of Cumbria – Institut of Art and Design.