Hòpheilun með leiddri hugleiðslu
Akureyri, , Akureyri Directions
Wed Nov 25 2026 20:00
✨ Hópheilun með leiddri hugleiðslu ✨
🌿 Ásetningur kvöldsins – Jarðtenging
Stundum er svo margt í gangi í kringum okkur að við gleymum að staldra við, anda og finna aftur jafnvægið innra með okkur.
Nú þegar annasamur tími fer í hönd ætlum við að gefa okkur stund til að styrkja jarðtenginguna, finna meiri innri ró og standa öruggari í okkur sjálfum.
Jarðtenging snýst meðal annars um að vera meira til staðar í eigin líkama, finna betur fyrir sjálfum sér og láta ekki áreiti, áhyggjur eða erfiðar aðstæður taka alveg yfir.
🌿 Í mjúkri, leiddri hugleiðslu ætlum við að vinna með jarðtengingu, innri styrk og jafnvægi. Að finna okkar eigin miðju, svo við eigum auðveldara með að mæta áskorunum daglegs lífs og samskiptum við aðra.
Að hugleiðslunni lokinni tekur við hópheilun þar sem þú færð að hvíla, slaka á og einfaldlega þiggja.
🤍 Þú þarft enga reynslu af hugleiðslu eða heilun.
Komdu bara eins og þú ert – með opinn hug og leyfðu þér að þiggja.
✨ Miðvikudaginn 25. nóvember 2026
📍 Sálarrannsóknarfélagið á Akureyri
Eygló & Ingibjörg ❤️
Hlý og nærandi kvöldstund fyrir þig.