Hr. Eydís og Erna Hrönn

Hr. Eydís og Erna Hrönn

The Green Hat, Hafnarstræti 96, 600 Akureyri Directions

Sat 10.10.2026 21:00

Alvöru '80s partý – Movie Hits

Bestu bíómyndalög níunda áratugarins!

Hr. Eydís og Erna Hrönn bjóða nú upp á tónleikapartý þar sem stærstu kvikmyndasmellir '80s fá að njóta sín. Á efnisskránni eru lögin sem hljómuðu í bíómyndunum og urðu meðal vinsælustu laga áratugarins.

Hvort sem þú manst eftir þeim úr bíóinu, af VHS-spólunum eða útvarpinu, þá eru þetta lög sem vekja upp minningar og fá flesta til að öskursyngja með.

Ef þú hefur áður séð Hr. Eydísi og Ernu Hrönn saman veistu við hverju má búast.

Hr. Eydís skipa Örlygur Smári, Erna Hrönn Ólafsdóttir, Páll Sveinsson, Ríkharður Arnar og Jón Örvar Bjarnason.

Tónleikarnir fara fram á Græna hattinum á Akureyri laugardaginn 10. október.

Forsalanhefst sun.9. ágúst kl. 10.00 á grænihatturinn.is

Performers