Hundrað ár í Sléttuhlíð
Wed 26.08.2026 20:00
Síðasta menningar- og heilsuganga sumarsins verður miðvikudaginn 26.ágúst kl.20👌🤗
Komdu út að ganga í heilsubænum Hafnarfirði 🚶♀️🚶♂️
Sveinn Magnússon leiðir fræðandi göngu um Sléttuhlíð þar sem sagt verður frá sögu svæðisins, fólkinu sem þar bjó og uppbyggingu sumarhúsabyggðarinnar. Sérstaklega verður fjallað um hvernig fyrstu sumarhúsin risu á svæðinu og hvernig frumkvöðlar hófu þar sumardvöl sína 🌱
📍 Gengið frá: Sléttuhlíð (C3)
Í sumar býður Hafnarfjarðarbær upp á bæjargöngur með leiðsögn alla miðvikudaga. Göngurnar eru samstarfsverkefni Bókasafns Hafnarfjarðar, Byggðasafns Hafnarfjarðar, Hafnarborgar og Heilsubæjarins Hafnarfjarðar. Flestar göngur taka um klukkustund og hefjast kl. 20, nema annað sé tekið fram. Þátttaka er ókeypis og öll velkomin 🤗
Göngur sumarsins 2026 👉 https://hfj.is/Gongur26
Performers
-
HafnarfjarðarbærHafnarfjörður er þriðji stærsti bær landsins, framsækið sveitarfélag sem byggir á fjölsky -
Byggðasafn HafnarfjarðarNíu sýningar í sex húsum, Pakkhúsið, Sívertsens-hús, Siggubær, Bungalowið,