Hvað liggur á bak við erfiða hegðun?
Live Stream - GMT, , Reykjavík Directions
Wed Oct 28 2026 20:00
Vilt þú skilja hvað liggur á bak við erfiða hegðun?
Óskar þú eftir verkfærum til þess að hjálpa barni í slíkum aðstæðum, án þess að skerða sjálfsmynd þess?
Með því að tvinna saman þekkingu á taugaskynjun og heilaþroska með persónulegu ferðalagi inní eigin uppeldissögu og tilfinningar – er hægt að finna réttu brautina að kærleiksríkum lausnum fyrir börnin okkar sem oft glíma við tilfinningalegar áskoranir.
Í fyrirlestrinum verður fjallað um:
Skilgreiningu á hegðun og þeirri hugarfarsbreytingu sem á sér stað í samfélaginu okkar með aukinni þekkingu á taugakerfinu. Hvað gerist innra með börnum sem eiga erfitt og hverjir eru áhrifavaldarnir á taugakerfi í uppnámi. Verkfæri til þess að aðstoða barn út úr vanlíðan og styrkja tengslin ykkar á milli
Fyrirlestrinum er ætlað að auka skilning og veita praktísk ráð og innblástur að kærleiksríkri tengslamyndun.
Fyrirlesturinn fer fram á Livestorm og er takmarkað miðaframboð. Miðaverð er 8.500 kr.
Miðar: https://www.egerunik.is/erfidhegdun
Þú ert hjartanlega velkomin!
Aðalheiður