Icelandair félagsvist í Jónshúsi

Icelandair félagsvist í Jónshúsi

Jónshús, Kaupmannahöfn, Øster Voldgade 12, 1350 København Directions

Fri Oct 30 2026 19:00

Velkomin í Icelandair félagsvist í Jónshúsi!

Langar þig í skemmtilegt kvöld í góðum félagsskap? Þá er félagsvistin eitthvað fyrir þig! ❤️

Allir geta spilað félagsvist – hvort sem þú ert vanur spilari eða hefur lítið sem ekkert spilað áður. Áður en við byrjum er farið yfir leikreglurnar, þannig að það er ekkert að óttast. 😊

🏆 Verðlaun fyrir flest stig

🙈 Skammarverðlaun fyrir fæst stig

🪑 Setuverðlaun fyrir þann sem situr lengst við sama borðið

Og það er ekki allt! ✈️

Í lok vetrar fá tveir stigahæstu spilarar vetrarins gjafakort frá Icelandair.

Til að tryggja að allir eigi möguleika á að komast á toppinn telja fjögur bestu spilakvöld hvers spilara. Stigin frá þeim kvöldum eru lögð saman og tveir stigahæstu spilararnir fá verðlaunin.

🕡 Húsið opnar kl. 18:30

🃏 Spilamennska hefst stundvíslega kl. 19:00

💰 Verð: 50 kr.

Félagsvist hefur verið spiluð í Jónshúsi í yfir 20 ár og er orðin fastur og skemmtilegur hluti af vetrarstarfinu. Hér hittist fólk, spilar, spjallar, hlær og fær sér smá veitingar. ❤️

Komdu einn eða taktu vin með – allir eru velkomnir!

Við hlökkum til að sjá þig! 🃏🥰

Alma og Guðrún