Íslensk Sjónabók: endurútgáfuhóf

Íslensk Sjónabók: endurútgáfuhóf

Hannesarholt, Grundarstigur 10, 101 Reykjavík Directions

Wed Dec 02 2026 18:00

Íslensk Sjónabók er á leiðinni til okkar og verður loksins fáanleg aftur eftir langa bið í byrjun desember. Í tilefni af endurútgáfunni blásum við til útgáfuhófs í Hannesarholti miðvikudagskvöldið 2. desember!

Hljómsveitin Umbra mun spila fáein lög og Birna Geirfinnsdóttir, annar ritstjóri bókarinnar, mun segja frá ferlinu hvernig tíu sjónabókarhandrit frá 17, 18. og 19 öld urðu að einu heildstæðu riti.

Hægt verður að sækja bókapantanir af Karolinafund á sjálfu útgáfuhófinu, en við biðjum ykkur að láta vita áður ef óskað er eftir því.

Verið hjartanlega velkomin að fagna með okkur endurútgáfu Íslensku Sjónabókarinnar í Hannesarholti miðvikudagskvöldið 2. desember!