Jaakko Laitinen & Väärä Raha hossast um Ísland ásamt Svavari Knúti
Ísland, Nauthólsvegur, 102 Reykjavík Directions
Wed Nov 04 2026 20:00
Finnlandsvinir og aðdáendur Balkantónlistar á Íslandi haldið mikla gleðiveislu nú í myrkasta skammdeginu, því þá mun finnska hljómsveitin Jaakko Laitinen & Väärä Raha halda í stutta tónleikaferð um landið og leika myrkar listir sínar fyrir balkantangóballþyrsta Íslendinga.
Jaakko Laitinen og vinir hans hafa síðan 2009 heillað áhorfendur vítt og breitt um Evrópu og eiga mikilli velgengni að fagna í heimalandinu og eins og allir vita kemur gott eitt frá Finnlandi.
Það er vinur Jaakko, Svavar Knútur, sem dregur þetta fríða föruneyti á skerið og mun hann, fyrir þrábeiðni Jaakkos, taka nokkur lög til upphitunar. Samt ekki mörg. Hann er aðallega bara að keyra bílinn og redda málum.
Kvöldið verður því nær algerlega í höndum hinna dásamlegu Finna sem hafa marinerað sál sína í balkneskum spíra sem eimaður var í gömlum Trabant.
Aðgangseyrir inn á tónleikana er litlar 4.000 krónur og er miðasala á Stubb.is
4. nóv. RVK - Café Rosenberg
5. nóv. EGS - Tehúsið
6. nóv. AEY - Leyni
7. nóv. KJÓS - Hlaðan á Hjalla
Hlökkum til að sjá ykkur þar!
Bestu kveðjur,
Jaakko Laitinen og Svavar Knútur