Jól í Stubbaþorpi - Jólaland Ellerts Grétarssonar
Bókasafn Reykjanesbæjar, Hjallavegur 2, 260 Ytri-Njarðvík Directions
Sat Nov 21 2026 11:00
Velkomin í Stubbaþorp! *ATH - Skráning nauðsynleg! - hlekkur neðst*
Í ár fá gestir Bókasafns Reykjanesbæjar tækifæri til að upplifa Stubbaþorp, gagnvirkt jólaland sem sett verður upp í Félagsbíói í Aðalsafni.
Jólalandið er verk Ellerts Grétarssonar, starfsmanns Bókasafns Reykjanesbæjar, en hann hefur unnið að gerð þorpsins í meira en tíu ár.
Elli er þekktur fyrir mikla handlagni en auk þess að þjónusta lánþega og gera við bækur í daglegu starfi dundar hann sér við bókband og alls kyns handverk í frítíma sínum. Við gerð Stubbaþorps nýtti hann meðal annars efnivið úr náttúrunni ásamt jólanissum sem hann hefur safnað í gegnum tíðina, en allt þorpið er smíðað og málað af honum sjálfum. Þá lagðist Ellert yfir grunnatriði í rafeindatækni til að gefa þorpinu líf með hreyfieffektum og fallegri jólalýsingu.
Í Stubbaþorpi býr fjöldi persóna sem allar eiga sína sögu. Elli tekur sjálfur á móti gestum, leiðir þá um jólalandið og segir þeim sögurnar á bak við þorpsbúa.
Jólalandið opnar dyr sínar 21. og 22. nóvember og er skráning nauðsynleg. Öll eru hjartanlega velkomin, bæði börn og fullorðnir.
Hlekkur fyrir skráningu:
https://jolaland.homer.is/