Jólabingó Félags fósturforeldra 2026

Jólabingó Félags fósturforeldra 2026

Mannréttindahús ÖBÍ, Sigtún 42, 105 Reykjavík Directions

Sun Nov 29 2026 14:00

Félag fósturforeldra stendur fyrir jólabingó í Mannréttindahúsinu, Sigtúni 42, sunnudaginn 29. nóvember kl. 14:00-16:30. Auk bingósins verður boðið upp á rjúkandi kakó, jólalegt kruðerí og svo er aldrei að vita nema jólasveinarnir komi sér ferð til byggða til að líta á okkur. Því er kjörið að félagsfólk taki fjölskylduna með sér.

Stjórn og skrifstofa félagsins vinnur að því hörðum höndum þessa stundina að afla glæsilegra vinninga.

Verð:

Bingóspjaldið verður á 1.000 krónur og 3 á 2.500 og verður tekið við greiðslum fyrir spjöldum á staðnum.

Við vonumst til að sjá sem flest, engrar skráningar er þörf en þó hjálpar okkur við skipulag ef fólk lætur vita af komu sinni og er gott að það sé gert í Facebook viðburði.