Jólahátíð í Osló
Nordberg Kirke, Kringsjågrenda 1, 0861 Oslo Directions
Sat Dec 12 2026 15:30
Íslenska kirkjan í Noregi í samstarfi við Íslendingafélagið í Osló, býður alla velkomna á Jólahátíð 12. desember kl.15:30 í Nordberg kirkju í Osló.
Dagurinn verður hlýr og hátíðlegur með mikilli tónlist, jólalestrum og söngvum, og jólaballi.
Jólahátíðin hefst kl. 15:30 með aðgengilegri og ljúfri jólaguðsþjónustu fyrir alla fjölskylduna, og að henni lokinni er jólaball í safnaðarheimilinu.
Það verður heitt kaffi á könnunni og allir taka með eitthvað gott á sameiginlegt kaffihlaðborð.
Gengið verður í kringum jólatré og hver veit nema jólaleynigestur mæti á svæðið með góðgæti í poka.
Hlökkum til að sjá ykkur öll og verið hjartanlega velkomin!