Jólahátíð í Sælen kirkju - Bergen
Sælen Church, , 5141 Fyllingsdalen Directions
Sat Dec 05 2026 13:00
Íslenska kirkjan í Noregi í samstarfi við Sönghópinn Björgvin býður alla velkomna á Jólahátíð laugardaginn 5.desember sem verður haldin í Sælen kirkju í Bergen.
Dagurinn verður hlýr og hátíðlegur með mikilli tónlist, jólalestrum og söngvum, og jólaballi.
Jólahátíðin hefst kl. 13 með aðgengilegri og ljúfri jólaguðsþjónustu fyrir alla fjölskylduna, og að henni lokinni er jólaball í safnaðarheimilinu.
Það verður heitt kaffi á könnunni og allir taka með eitthvað gott á sameiginlegt kaffihlaðborð.
Gengið verður í kringum jólatré og hver veit nema jólaleynigestur mæti á svæðið með góðgæti í poka.
Hlökkum til að sjá ykkur öll og verið hjartanlega velkomin!